Margir bílar eru auglýstir til sölu á Facebook og þar er hægt að finna góða bíla á góðu verði. En þegar þú finnur bíl í Facebook-hópi eða á Marketplace getur verið erfiðara að vita hver er raunverulega að selja bílinn og hvort allt sé með felldu. Það er því skynsamlegt að kanna nokkur atriði áður en þú greiðir fyrir bílinn eða gengur frá kaupunum.

Fáðu fullt nafn seljanda og athugaðu hvort hann sé skráður eigandi bílsins. Ef viðkomandi er að selja bíl fyrir annan aðila skaltu fá skýringar á því og ganga úr skugga um að hann hafi heimild til þess. Vertu sérstaklega varkár ef seljandi vill fá greiðslu eða staðfestingargjald áður en þú hefur séð bílinn, neitar að gefa upp nauðsynlegar upplýsingar eða reynir að flýta viðskiptunum óeðlilega mikið.
Ef þú finnur bíl á Facebook getur þú einfaldlega beðið seljandann um að skrá bílinn á auto.is áður en þið haldið áfram. Það kostar ekkert að auglýsa bíl á auto.is. Þannig færðu auglýsingu með upplýsingum um bílinn á einum stað og getur átt samskipti við seljandann í gegnum auto.is. Þú getur einnig sent tilboð í bílinn þar. Skráning á auto.is er þó ekki trygging fyrir því að viðskiptin séu áhættulaus og þú ættir áfram að kanna bílinn og seljandann áður en gengið er frá kaupum. Ef eitthvað vekur grunsemdir eða þú ert ekki viss um hvernig best sé að halda áfram getur þú haft samband við okkur hjá auto.is. Við getum aðstoðað við að skoða málið áður en þú tekur næsta skref.
Ekki láta myndir og lýsingu í Facebook-auglýsingu vera einu upplýsingarnar sem þú hefur um bílinn. Fáðu skráningarnúmerið og kannaðu meðal annars eignarhald, veðbönd og þær upplýsingar sem liggja fyrir um bílinn. Á auto.is getur þú einnig sótt Bílasögu og fengið betri yfirsýn yfir feril bílsins áður en þú ákveður hvort þú viljir kaupa hann. Ef um dýrari bíl er að ræða getur einnig verið skynsamlegt að láta ástandsskoða hann. https://auto.is/club/posts/-/-/ByYlydbN7o
Ef seljandi biður um fyrirframgreiðslu til að „taka bílinn frá“ skaltu fara varlega. Skoðaðu bílinn sjálfur og vertu viss um við hvern þú ert að eiga við áður en þú greiðir. Ef verðið virðist óvenju lágt, seljandi er mjög óþolinmóður eða upplýsingarnar ganga ekki upp er betra að kanna málið betur en að taka óþarfa áhættu.
Ef þú hefur skoðað bílinn, ert sáttur við hann og hefur samið við seljandann um verð tekur við sjálfur frágangur viðskiptanna. Ef kaupin eru einföld geta kaupandi og seljandi gengið sjálfir frá kaupsamningi, greiðslu og eigendaskiptum. En stundum er meira sem þarf að leysa. Kaupandi gæti til dæmis þurft bílalán eða áhvílandi lán gæti verið á bílnum. Þá er hægt að nota Öryggissölu auto.is. https://auto.is/oryggissala Með Öryggissölu fara viðskiptin í formlegra ferli þar sem frekari upplýsingar um bílinn og aðila viðskiptanna eru staðfestar og samstarfsaðili auto.is sér um frágang þeirra. Þetta getur sérstaklega hentað þegar fjármögnun kemur við sögu eða þegar kaupandi og seljandi vilja einfaldlega fá aðstoð við að ganga rétt frá viðskiptunum.
Þótt þú finnir bíl á Facebook þurfa viðskiptin sjálf ekki að fara fram þar. Þú getur beðið seljandann um að skrá bílinn á auto.is, kannað bílinn betur og haldið samskiptunum áfram þar. Ef þið ákveðið síðan að ganga frá kaupunum er hægt að nota Öryggissölu þegar þörf er á frekari aðstoð og staðfestingu. Fannstu bíl á Facebook og ert ekki viss um næstu skref? Hafðu samband við auto.is og við aðstoðum þig.
Athugasemdir 0