Það er ekki alltaf nóg að sjá ljós loga að framan. Á sumum bílum geta dagljós að framan verið kveikt án þess að afturljósin logi.
Það getur verið sérstaklega varasamt í myrkri, rigningu og slæmu skyggni þegar bíllinn verður mun erfiðari að sjá aftan frá. Það er því góð regla að athuga hvaða ljósastilling er virk og ganga úr skugga um að afturljósin séu einnig kveikt þegar aðstæður kalla á það.
Veistu hvernig þetta virkar á þínum bíl?

Athugasemdir 0