Hvað er eðlilegt ástand á rafhlöðu í notuðum rafbíl?

Þegar keyptur er notaður rafbíll segir aldur og kílómetrafjöldi ekki alla söguna. Rafhlöður eldast mismunandi eftir notkun, hleðslu og öðrum aðstæðum og því getur verið töluverður munur á tveimur sambærilegum bílum. ADAC í Þýskalandi hefur tekið saman viðmið um hvaða SoH (State of Health) megi almennt búast við miðað við akstur: ⚡ 50.000 km — um 92% eða meira ⚡ 100.000 km — um 88% eða meira ⚡ 150.000 km — um 84% eða meira ⚡ 200.000 km — um 80% eða meira

SoH segir til um ástand rafhlöðunnar miðað við þegar hún var ný. 88% SoH þýðir því í einföldu máli að rafhlaðan hefur um 88% af upphaflegri getu sinni eftir.

Það þýðir þó ekki að bíll með 85% SoH sé sjálfkrafa slæmur kostur. Aldur, akstur, verð bílsins og hvernig á að nota hann skipta líka máli. Mikilvægast er að vita hvert raunverulegt ástand rafhlöðunnar er áður en gengið er frá kaupum. Þess vegna mælir ADAC með því að kaupendur notaðra rafbíla óski eftir nýlegu rafhlöðuvottorði.

Á auto.is er hægt að bóka óháða AVILOO heilsumælingu á rafhlöðu og fá vottorð um ástand hennar:

Hvað er eðlilegt ástand á rafhlöðu í notuðum rafbíl?

Athugasemdir 0

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880