Tesla Model 3
Það hljómar vel á pappír, en að mínu mati er þetta ekki þess virði eins og staðan er í dag.
Ástæðan er einföld: Full Self-Driving (Supervised) er ekki komið í notkun á Íslandi ennþá. Þú ert því í raun að borga fyrir þá eiginleika sem eru nú þegar í boði, eins og Autosteer, Navigate on Autopilot, Autopark og Actually Smart Summon (ASS), en þeir eru frekar takmarkaðir hér.
Mín reynsla er þessi:
* Autosteer og Navigate on Autopilot virka aðeins almennilega á ákveðnum vegum.
* ASS hefur mjög takmarkað notagildi.
* Og íslensku vegirnir hjálpa ekki til – bíllinn virðist finna hverja einustu holu í veginum í stað þess að reyna að forðast þær.
Ég hlakka til þegar Tesla opnar raunverulegt FSD hér á landi, því tæknin hefur gríðarlega möguleika. En eins og staðan er í dag finnst mér erfitt að réttlæta 14.200 kr. á mánuði fyrir þá virkni sem er í boði.
Ég myndi frekar bíða þar til full virkni verður í boði á Íslandi.