
VW Bora 2.8 VR6 Variant 4Motion – „R28“
2001
264800km
2.8 VR6 204HÖ
6 gíra BSK
4Motion (4x4)
Jazz Blue (LW5Z)
Þetta er, eftir því sem ég best veit, eina eintakið af Bora Variant með þessari vél á Íslandi.
Bíllinn var fluttur inn til Íslands í október 2025 og hefur aðeins haft einn eiganda hér á landi. Hann hefur verið á Austurlandi og ekki verið notaður á saltuðum vegum yfir veturinn.
Búnaður:
• Cruise control
• Multifunction stýri
• Bluetooth í stað CD-magasíns, hægt að stjórna Spotify og annarri tónlist úr símanum með tökkunum á stýrinu
• Hiti í framsætum
• Hiti í hliðarspeglum
• Sjálfdekkjandi baksýnisspegill
• Hálfleðursæti að framan og aftan
• Xenon
• Hægt að opna og loka rúðum með fjarstýringu
• Bastuck exhaust
• Tvö felgusett með dekkjum
Mikið hefur verið gert við bílinn á undanförnum árum, m.a:
• Skipt um tímakeðjusett
• Ný kúpling og tvímassasvifhjól
• Nýir höggdeyfar og gormar að framan og aftan
• Skipt um sílsa og gert við frambretti
• Nýir bremsudiskar, klossar og bremsudælur
• Ný eldsneytisdæla
• Ný vatnsdæla
• Nýr miðstöðvarofn og viðgerð á loftspjöldum
• Nýr alternator, rafgeymir og öryggjabox
• Nýjar eldsneytisleiðslur
• Ýmsir nýir skynjarar, pakkningar og aðrir íhlutir
Ítarleg viðgerðar- og viðhaldssaga er aðgengileg á heimasíðu bílsins.
Mikið magn af nýjum varahlutum fylgir bílnum, m.a hjólalegur, hjólnafir, stýrisstangir, spindilkúluliðir, jafnvægisstangartenglar, síur, alternator og ýmislegt fleira.
Bíllinn er rúmlega 25 ára gamall og er ekki gallalaus.
• Nokkrir litlir ryðblettir á yfirborði
• Glært lakk farið að flagna á nokkrum stöðum
• Þakklæðning farin að losna aftast í farangursrýminu
Verð: 2.000.000 kr. – fast verð.
Reyðarfjörður, Austurland
Nánari upplýsingar, ítarleg viðgerðarsaga, myndir og varahlutalisti eru á heimasíðu bílsins:
https://sites.google.com/view/boravr6/home