Heilsumæling rafhlöðu

Veistu í hvaða ástandi rafhlaðan er?

Þegar þú kaupir eða selur notaðan rafbíl skiptir ástand rafhlöðunnar miklu máli. Með AVILOO heilsumælingu færðu óháða greiningu og skýrari mynd af ástandi hennar.

Þjónustan er framkvæmd af Parallel ehf., umboðsaðila AVILOO á Íslandi. auto.is er samstarfsaðili og framkvæmir ekki mælinguna.

Bíllinn getur litið vel út.
En hvað með rafhlöðuna?

Akstur, aldur, hleðsla og notkun geta haft áhrif á rafhlöðuna. Heilsumæling gefur þér upplýsingar sem sjást ekki við venjulega skoðun á bílnum.

Sjáðu raunverulegt ástand

Fáðu óháða mælingu á heilsu rafhlöðunnar í stað þess að treysta eingöngu á áætlanir bílsins.

Meira öryggi í viðskiptunum

Skýr niðurstaða getur hjálpað bæði kaupanda og seljanda að taka upplýstari ákvörðun.

Meira traust

AVILOO vottorð gefur kaupanda betri mynd af einu mikilvægasta og verðmætasta kerfi rafbílsins.

Ertu að kaupa?

Fáðu betri mynd áður en þú ákveður þig

Rafhlaðan er stór hluti af verðmæti rafbíls. Óháð heilsumæling getur gefið þér mikilvægar upplýsingar áður en gengið er frá kaupum.

  • Metið ástand rafhlöðunnar
  • Auðveldara að bera saman bíla
  • Betri grundvöllur fyrir kaupákvörðun
Ertu að selja?

Sýndu ástandið í stað þess að biðja kaupandann að treysta þér

Óháð vottorð getur dregið úr óvissu hjá kaupanda og gefið auglýsingunni sterkari upplýsingar um ástand bílsins.

  • Aukið gagnsæi fyrir kaupendur
  • Sterkari upplýsingar með auglýsingunni
  • Minni óvissa um rafhlöðuna

Veldu mælingu

Mælingarnar eru framkvæmdar af Parallel með AVILOO greiningarbúnaði.

Vinsælasta

Hraðgreining

AVILOO FLASH Test

24.900 kr.

Fljótleg greining fyrir þá sem vilja fá skýra mynd af heilsu rafhlöðunnar án umfangsmikillar prófunar.

  • Tekur um 10–15 mínútur
  • Fyrir rafbíla og tengiltvinnbíla
  • AVILOO niðurstaða og vottorð
  • Framkvæmt af Parallel

Ítarlegri greining

AVILOO PREMIUM Test

44.900 kr.

Ítarleg greining þar sem gögnum er safnað yfir akstur bílsins til að fá nákvæmari upplýsingar um rafhlöðuna.

  • Ítarleg greining rafhlöðunnar
  • Mæling yfir akstur frá háu niður í lágt hleðslustig
  • Niðurstöður að prófun lokinni
  • Framkvæmt af Parallel
Bóka djúpgreiningu

Rafhlöðuábyrgð með FLASH Test

Allt að 420.000 kr. í rafhlöðuábyrgð

Ef bíllinn uppfyllir skilyrði AVILOO getur FLASH Test veitt 1 árs rafhlöðuábyrgð eða allt að 20.000 km.

1 ár

gildistími ábyrgðar

20.000 km

hámarksakstur

420.000 kr.

allt að €3.000

Ábyrgðin gildir aðeins ef ökutækið stenst skilyrði AVILOO og rafhlöðuheilsa er innan þeirra marka sem koma fram á ábyrgðarskírteini eftir prófun. Fjárhæð miðast við allt að €3.000 eða 420.000 kr. miðað við EUR/ISK 140.

Kynna sér skilmála ábyrgðar

Veldu tíma sem hentar þér

Bókun og framkvæmd mælingarinnar er á vegum Parallel, umboðsaðila AVILOO á Íslandi.

auto.is er samstarfsaðili Parallel vegna þessarar þjónustu. Mæling, niðurstöður, vottorð og eftir atvikum ábyrgð eru á vegum Parallel og/eða AVILOO samkvæmt þeirra skilmálum.

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880