Öruggari leið til að ganga frá bílaviðskiptum
Auto.is hjálpar kaupanda og seljanda að ganga frá viðskiptunum á einum stað með upplýsingum um fjármögnun, tryggingar, greiðslur og frágang.
Allt á einum stað
Öryggissala heldur utan um fráganginn þegar lán, uppgjör eða uppítaka koma við sögu svo kaupandi og seljandi þurfi ekki að samræma allt sjálfir.
Við sjáum um kaupsamning, afsal, eigendaskipti og nauðsynlega skjalavinnu svo viðskiptin séu kláruð með réttum hætti.
Þarf kaupandi lán? Fjármögnunin er tekin inn í sama ferli og viðskiptin svo hægt sé að ganga frá láninu og kaupunum saman.
Ef lán hvílir á bílnum eða annar bíll fer upp í kaupin er það tekið með í uppgjörið og frágang viðskiptanna.
Þú byrjar ferlið á netinu og kaupandi og seljandi skrá þær upplýsingar sem þarf til að ganga frá viðskiptunum. Þegar allt er tilbúið fer málið í yfirferð og áframhaldandi vinnslu.
Þótt ferlið hefjist rafrænt þarf að yfirfara hvert mál áður en hægt er að ganga endanlega frá viðskiptunum. Ef fjármögnun, uppgreiðsla láns eða tryggingar koma við sögu getur einnig þurft að vinna málið með viðkomandi banka eða tryggingafélagi.
Mál eru unnin á virkum dögum og laugardögum. Vinnslutími fer eftir eðli viðskiptanna og opnunartíma banka og annarra þjónustuaðila.
Kaupandi og seljandi geta ákveðið sín á milli hvernig kostnaðinum við Öryggissölu er skipt.