Parallel, umboðsaðili AVILOO á Íslandi, hefur hafið samstarf við bílamarkaðinn auto.is um að gera heilsumælingar á rafhlöðum rafbíla aðgengilegri fyrir kaupendur og seljendur notaðra bíla.
Með samstarfinu geta notendur auto.is nú bókað rafhlöðumælingu hjá Parallel beint í gegnum vefinn og appið.
AVILOO er alþjóðlegt greiningarkerfi sem metur ástand rafhlaðna í rafbílum og tengiltvinnbílum. Með mælingunni fá bíleigendur skýrslu um ástand rafhlöðunnar sem getur nýst við kaup, sölu og verðmat á notuðum rafbílum.
Parallel býður meðal annars upp á hraðgreiningu sem tekur um 10–15 mínútur. Mælingunni getur einnig fylgt eins árs rafhlöðuábyrgð frá AVILOO að verðmæti allt að 3.000 evrum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
„Prófið veitir eigandanum og væntanlegum kaupanda aukið öryggi og betri innsýn í ástand rafhlöðunnar við kaup eða sölu á bílnum. Það skiptir máli að þekkja ástand þess sem verið er að kaupa eða selja. Þetta verður sífellt mikilvægara eftir því sem rafbílar eldast og rafhlöður fara að gefa eftir,“ segir Arnar hjá Parallel.

„Við hjá auto.is teljum þetta mjög góða viðbót fyrir okkar notendur. Þegar fólk kaupir notaðan rafbíl er mikilvægt að hafa sem bestar upplýsingar um ástand rafhlöðunnar. Með samstarfinu við Parallel getum við auðveldað fólki að nálgast þessa þjónustu og taka upplýstari ákvarðanir við kaup og sölu,“ segir Alexander, stofnandi auto.is.
Samstarfið gerir þjónustu Parallel aðgengilega í gegnum auto.is, þar sem kaupendur og seljendur geta kynnt sér heilsumælingar og bókað tíma.
Athugasemdir 0