Framrúðu Vernd

Fáðu sjálfsábyrgðina endurgreidda

Tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð sem tryggingafélagið þitt innheimtir ef þú lendir í bótaskyldu framrúðutjóni á tryggðu ökutæki, að hámarki 72.500 kr.

Í samstarfi við Tryggingamiðlun Íslands.

Viðbótarvernd fyrir sjálfsábyrgðina

Framrúðu Vernd er viðbót við þær bifreiðartryggingar sem þú hefur hjá þínu tryggingafélagi, en kemur ekki í stað þeirra.

Allt að 72.500 kr.

Framrúðu Vernd endurgreiðir sjálfsábyrgðina að hluta eða öllu eftir bótaskylt framrúðutjón, að hámarki 72.500 kr. fyrir stakt tjón.

12 mánaða vernd

Tryggingin er gerð til eins árs og endurnýjast sjálfkrafa á ári hverju. Aðeins er hægt að gera eina kröfu á hverju vátryggingartímabili.

Hvernig virkar þetta?

Einfalt að sækja um tryggingu og enn einfaldara að sækja bætur. Þegar þitt tryggingafélag bætir framrúðutjónið er sjálfsábyrgðin endurgreidd samkvæmt skilmálum Framrúðu Verndar.

  1. 1.

    Sæktu bætur

    Komi til bótaskylds framrúðutjóns sækir þú bætur til þíns tryggingafélags, sem mun krefjast greiðslu á sjálfsábyrgð.

  2. 2.

    Sendu tjónauppgjörið til TMÍ

    Þegar tryggingafélagið hefur lokið vinnslu við bótakröfu þína tilkynnir þú tjónið til TMÍ og sendir afrit af tjónauppgjörinu.

  3. 3.

    Fáðu endurgreiðslu

    Framrúðu Vernd endurgreiðir þér sjálfsábyrgðina, að hámarki 72.500 kr., samkvæmt skilmálum tryggingarinnar.

Ársiðgjald Framrúðu Verndar

12 mánaða vátryggingarvernd. Iðgjöld eru vísitölutengd.

0–15 ára bifreiðar

7.500 kr. / ári

Allt að 72.500 kr. fyrir eitt tjón á hverju vátryggingartímabili.

Sjálfvirk árleg endurnýjun

Nánar um trygginguna

Tryggingin minnkar eða greiðir að fullu þá sjálfsábyrgð sem eigandi bifreiðar þarf að greiða við kröfu úr ábyrgðartryggingu vegna tjóns á framrúðu, að hámarki vátryggingarfjárhæðarinnar.

Hvað er tryggt?

  • Endurgreiðsla á sjálfsábyrgð við bótaskylt framrúðutjón úr ábyrgðartryggingu bifreiðar, að hluta eða öllu, að hámarki 72.500 kr.

Helstu takmarkanir

Tryggingin gildir ekki í öllum tilvikum, meðal annars ef tjón verður vegna stórkostlegs gáleysis, ölvunar eða ólöglegrar háttsemi.

Aðeins er hægt að gera eina kröfu á hverju vátryggingartímabili.

Ofangreint er ekki fullt yfirlit yfir gildissvið tryggingarinnar. Fulla lýsingu á vátryggingarvernd, þar á meðal takmarkanir og reglur um bætur, má finna í viðeigandi vátryggingarskilmálum hjá TMÍ.

Viltu Framrúðu Vernd?

auto.is safnar upplýsingum fyrir umsóknina þína og sendir þær til Tryggingamiðlunar Íslands, sem sér um trygginguna og þjónustu.

Sækja um

Tryggingamiðlun Íslands ehf. · Hlíðasmára 12, 201 Kópavogur · Sími 553 6688

Tryggingamiðlun Íslands hefur miðlað vátryggingum frá árinu 1997 og verið samstarfsaðili Tryg í 20 ár. Öll sala og þjónusta Framrúðu Verndar fer fram hjá Tryggingamiðlun Íslands.

Framrúðu Vernd er unnin í samstarfi við Tryg Forsikring A/S.

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880