Kaskó Vernd

Fáðu sjálfsábyrgðina endurgreidda

Tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð sem tryggingafélagið þitt innheimtir ef þú lendir í bótaskyldu tjóni á tryggðu ökutæki, að hámarki 146.500 kr.

Í samstarfi við Tryggingamiðlun Íslands.

Viðbótarvernd fyrir sjálfsábyrgðina

Kaskó Vernd er viðbót við þær bifreiðartryggingar sem þú hefur hjá þínu tryggingafélagi, en kemur ekki í stað þeirra.

Allt að 146.500 kr.

Sjálfsábyrgð við tjón á ökutækjum er á bilinu 130 til 170 þúsund krónur. Kaskó Vernd greiðir hana að hluta eða öllu, að hámarki 146.500 kr. fyrir stakt tjón.

Bílaleigubílar erlendis

Verndin gildir einnig um sjálfsábyrgð á bílum sem þú leigir í gegnum viðurkennda, löglega bílaleigu erlendis, með þeim takmörkunum sem koma fram hér að neðan.

12 mánaða vernd

Tryggingin er gerð til eins árs og endurnýjast sjálfkrafa á ári hverju. Aðeins er hægt að gera eina kröfu á hverju vátryggingartímabili.

Hvernig virkar þetta?

Einfalt að sækja um tryggingu og enn einfaldara að sækja bætur. Svo lengi sem þitt tryggingafélag bætir tjónið er sjálfsábyrgðin endurgreidd samkvæmt skilmálum Kaskó Verndar.

  1. 1.

    Sæktu bætur

    Komi til bótaskylds tjóns sækir þú bætur til þíns tryggingafélags, sem mun krefjast greiðslu á sjálfsábyrgð.

  2. 2.

    Sendu tjónauppgjörið til TMÍ

    Þegar tryggingafélagið hefur lokið vinnslu við bótakröfu þína tilkynnir þú tjónið til TMÍ og sendir afrit af tjónauppgjörinu.

  3. 3.

    Fáðu endurgreiðslu

    Kaskó Vernd endurgreiðir þér sjálfsábyrgðina, að hámarki 146.500 kr., samkvæmt skilmálum tryggingarinnar.

Ársiðgjald Kaskó Verndar

12 mánaða vátryggingarvernd. Iðgjöld eru vísitölutengd.

1 árs
0 ára15 ára

Ársiðgjald fyrir 1 árs bifreið

15.000 kr. / ári

Allt að 146.500 kr. fyrir eitt tjón á hverju vátryggingartímabili.

Sjálfvirk árleg endurnýjun

Nánar um trygginguna

Tryggingin minnkar eða greiðir að fullu þá sjálfsábyrgð sem eigandi bifreiðar þarf að greiða við kröfu úr kaskótryggingu, að hámarki vátryggingarfjárhæðarinnar.

Hvað er tryggt?

  • Innbrot og þjófnaður.
  • Tjón vegna skyndilegra, utanaðkomandi atvika.
  • Eldur.
  • Aðrir ófyrirsjáanlegir atburðir sem falla undir almenna vátryggingarvernd.

Helstu takmarkanir

Tryggingin gildir ekki í öllum tilvikum, meðal annars ef tjón verður vegna stórkostlegs gáleysis, ölvunar eða ólöglegrar háttsemi.

Aðeins er hægt að gera eina kröfu á hverju vátryggingartímabili.

Ofangreint er ekki fullt yfirlit yfir gildissvið tryggingarinnar. Fulla lýsingu á vátryggingarvernd, þar á meðal takmarkanir og reglur um bætur, má finna í viðeigandi vátryggingarskilmálum hjá TMÍ.

Viltu Kaskó Vernd?

auto.is safnar upplýsingum fyrir umsóknina þína og sendir þær til Tryggingamiðlunar Íslands, sem sér um trygginguna og þjónustu.

Sækja um

Tryggingamiðlun Íslands ehf. · Hlíðasmára 12, 201 Kópavogur · Sími 553 6688

Tryggingamiðlun Íslands hefur miðlað vátryggingum frá árinu 1997 og verið samstarfsaðili Tryg í 20 ár. Öll sala og þjónusta Kaskó Verndar fer fram hjá Tryggingamiðlun Íslands.

Kaskó Vernd er unnin í samstarfi við Tryg Forsikring A/S.

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880