Boð í Ferrari 288 GTO komin í 6,75 milljónir dala á afmælisuppboði BaT

Ferrari

Átta dagar eru enn eftir af uppboðinu.

https://bringatrailer.com/listing/1985-ferrari-288-gto-2/

Sjaldgæfur Ferrari 288 GTO árgerð 1985 hefur verið settur á uppboð hjá netuppboðssíðunni Bring a Trailer (BaT) sem 250.000. uppboðsgripur vettvangsins. Bíllinn tilheyrir fyrstu 200 eintökunum sem smíðuð voru til að uppfylla skilyrði fyrir keppni í Group B-rallflokki. Alls voru aðeins framleidd 272 eintök af gerðinni.

Hæsta boð stendur nú í 6,75 milljónum Bandaríkjadala en átta dagar eru enn eftir af uppboðinu.

Bíllinn á sér litríka sögu. Fyrsti eigandi hans var safnarinn Sam Bardor sem keypti hann í júní 1985. Hann lét mála bílinn silfurlitaðan í stað hins hefðbundna Rosso Corsa-rauða frá Ferrari, þar sem allir bílar í safni hans voru í sama lit. Síðar gekk bíllinn kaupum og sölum í Bandaríkjunum og Evrópu og var á endanum færður aftur í upprunalegan lit. Árið 1993 var hann gerður upptækur af hollenskum yfirvöldum og stóð í vörslu þeirra þar til undir lok áratugarins.

Árið 2010 keypti bandaríski Ferrari-salinn Giuseppe Risi bílinn og sendi hann til Ferrari þar sem hann gekkst undir umfangsmikla endurgerð. Verkinu lauk árið 2011 þegar bíllinn hlaut Ferrari Classiche-vottun sem staðfestir uppruna hans og áreiðanleika.

Síðar var bíllinn meðal annars í eigu safnara í Los Angeles og Austin áður en núverandi eigandi keypti hann snemma árs 2026.

Yfirbygging Ferrari 288 GTO er að stórum hluta smíðuð úr samsettum efnum og Kevlar til að halda þyngd í lágmarki. Bíllinn er knúinn 2,9 lítra Tipo F114B V8-vél með tveimur forþjöppum sem skilar 400 hestöflum. Aflinu er komið til afturhjólanna í gegnum fimm gíra beinskiptingu með húsi úr magnesíumblendi.

Akstur bílsins er um 23 þúsund kílómetrar og hann fékk ítarlega þjónustuskoðun áður en uppboðið hófst.

Í janúar var annar Ferrari 288 GTO, sem aðeins hafði verið ekinn um 1.500 kílómetra, seldur á uppboði. Lokaverðið nam 9.117.500 evrum (um 1,31 milljarði króna miðað við gengi dagsins), þrátt fyrir að verðmatið hefði hljóðað upp á 6–7 milljónir evra.

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880