Hönnuðir Ferrari útskýra umdeilt útlit fyrsta rafbíls fyrirtækisins

Ferrari

Ferrari kynnti á dögunum sinn fyrsta rafbíl, Luce, sem þykir marka tímamót hjá ítalska bílaframleiðandanum. Bíllinn vekur athygli ekki aðeins fyrir tæknina heldur einnig fyrir umdeilda hönnun og hafa viðbrögðin verið hörð á samfélagsmiðlum og meðal bílaáhugafólks.

Hönnuðir Luce, þeir Jony Ive, fyrrverandi hönnunarstjóri Apple, og Flavio Manzoni, yfirhönnuður Ferrari, ræddu gagnrýnina í hlaðvarpi blaðakonunnar Cleo Abram. Þar sögðu þeir að fólk þyrfti að læra að taka breytingum og að þeir væru sannfærðir um að bíllinn ætti eftir að ná miklum vinsældum.

Samkvæmt hönnuðunum á Luce að endurspegla nýja stefnu Ferrari. Ive sagði fyrirtækið lengi hafa lagt áherslu á að ýta mörkum hönnunar og tækni áfram og prófa hugmyndir sem önnur bílafyrirtæki þora síður að fara út í. Þá hafi markmiðið einnig verið að koma fólki á óvart með útliti bílsins.

Luce var frá upphafi hugsaður sem tæknilega fullkomnasti Ferrari-bíllinn hingað til og því þótti mikilvægt að hann skæri sig skýrt frá öðrum bílum framleiðandans. Manzoni sagði marga gagnrýnendur of fastheldna á fortíðina í stað þess að taka nýrri hönnun opnum örmum. Hann telur að margir þeirra sem gagnrýna bílinn í dag eigi eftir að venjast nýrri hönnunarstefnu Ferrari.

Að mati Manzoni gæti Luce notið svipaðra vinsælda og Purosangue, fyrsti jepplingur Ferrari frá Maranello. Til að halda í sérstöðu bílsins hefur Ferrari takmarkað framleiðslu Purosangue við um 20 prósent af heildarframleiðslu fyrirtækisins.

Svipuð gagnrýni kom fram þegar Jaguar kynnti hugmyndabílinn Type 00. Hönnuðinum Gerry McGovern var síðar sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Þá hefur ný hönnunarstefna BMW einnig fengið blendin viðbrögð, meðal annars á rafbílum fyrirtækisins sem byggja á Neue Klasse-verkefninu.

Auto.is - auto@auto.is. - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - 560223-1880