Tesla Roadster hægt að forpanta á Íslandi fyrir rúmar 6,2 milljónir

Tesla

Tesla Roadster er nú hægt að forpanta á íslenskri vefsíðu Tesla. Samkvæmt upplýsingum sem birtust á vef fyrirtækisins 15. október 2026 þarf að greiða samtals 6.211.000 kr. til að tryggja sér pöntun.

Við pöntun eru 56.000 kr. greiddar með kreditkorti, en síðan þarf að millifæra 6.155.000 kr. innan tíu daga. Tesla tekur jafnframt fram að pöntunin teljist ekki frágengin fyrr en millifærslan hefur borist.

Upphaflega greiðslan, 56.000 kr., er sögð endurgreiðanleg að fullu.

Tesla Roadster var fyrst kynntur árið 2017, en framleiðsla bílsins hefur ítrekað tafist. Því vekur athygli að nú sé hægt að leggja inn pöntun á bílnum á íslenskri útgáfu vefsíðu Tesla.

Mynd: Skjáskot af íslenskri vefsíðu Tesla, 15. október 2026.

Tesla Roadster hægt að forpanta á Íslandi fyrir rúmar 6,2 milljónir

Athugasemdir 0

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880