Hvernig skrái ég bíl til sölu á Auto.is?
- Sláðu inn skráningarnúmerið. Opnaðu Skrá ökutæki og sláðu inn skráningarnúmer bílsins. Helstu upplýsingar um bílinn fyllast sjálfkrafa út.
- Bættu við upplýsingum og myndum. Settu inn verð, lýsingu, akstur og myndir. Taktu fram þekkta galla og nýlegt viðhald svo kaupandi geti metið ástand bílsins.
- Yfirfarðu og birtu auglýsinguna. Þegar allt er tilbúið skaltu birta hana. Ef þú vilt auka sýnileika auglýsingarinnar geturðu valið viðbótarþjónustu gegn gjaldi.
- Finndu auglýsinguna þína. Eftir birtingu finnurðu hana undir Auglýsingarnar mínar.