Hjálparvalmynd

Auto.is eða Bland.is?

Þú getur nýtt báða vefi þegar þú kaupir eða selur bíl. Bland.is er almennt smáauglýsingatorg þar sem bílar eru einn af mörgum flokkum. Auto.is sérhæfir sig í ökutækjum og býður upp á Bílasögu og Öryggissölu, líka þegar þú finnur bílinn á Bland.

Náðu til fólks sem er að leita að bíl

Ef þú ert að selja geturðu auglýst á báðum stöðum. Á Auto.is birtist bíllinn fólki sem er sérstaklega að leita að ökutæki. Kaupendur geta fundið auglýsinguna með síum fyrir verð, árgerð, akstur og orkugjafa. Ef þú auglýsir á báðum vefjum skaltu halda verði og stöðu auglýsinganna samræmdum.

Skoðaðu sögu bíls sem þú fannst á Bland

Biddu seljandann um skráningarnúmerið og flettu bílnum upp í Bílasögu Auto.is. Bíllinn má vera auglýstur á Bland eða annars staðar. Framboð gagna fer eftir bílnum.

Gakktu frá kaupunum með Öryggissölu

Þegar þú og seljandinn hafið samið um kaup getið þið notað Öryggissölu Auto.is til að halda utan um kaupsamning, greiðslu og eigendaskipti. Þið getið hafið ferlið á Auto.is þótt þið hafið fundið hvort annað á Bland.

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880