Hjálparvalmynd

Selja sjálfur eða í gegnum bílasölu?

Einkasala hentar þegar þú vilt stjórna auglýsingu, verði og samskiptum. Bílasala getur hentað þegar þú vilt fela öðrum að sjá um sýningar eða samningaviðræður. Uppítaka kemur til greina þegar þú ætlar að kaupa annan bíl um leið.

Í einkasölu sérðu um auglýsingu, fyrirspurnir og reynsluakstur. Berðu saman auglýsingakostnað og þann tíma sem fer í söluna.

Í umboðssölu skaltu spyrja hver greiðir þóknun og annan kostnað, hvaða þjónusta sé innifalin og hvenær greiðsla berst. Ef bílasalan kaupir bílinn eða tekur hann upp í annan skaltu fá tilboðið skriflega og bera saman heildarmismuninn við að selja sjálfur.

Ef salan gengur hægar en þú bjóst við hjá bílasölunni geturðu líka skráð bílinn ókeypis á Auto.is, svo framarlega sem samningurinn við bílasöluna leyfir það. Stundum borgar sig að taka nýjar myndir sjálfur í dagsbirtu svo kaupendur sjái hvernig bíllinn lítur út í dag. Á Auto.is sérðu hvaða tilboð berast og getur metið áhugann út frá fyrirspurnum og tilboðum.

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880