Hvað á að skoða fyrir bílakaup?
Skoðaðu bílinn í dagsbirtu og athugaðu hvort hann sé eins og honum er lýst í auglýsingunni. Farðu svo í reynsluakstur. Ef þú ert enn í vafa um ástand bílsins geturðu bókað ástandsskoðun hjá óháðum aðila.
- Saga og gögn. Berðu skráningarnúmer og ökutækisnúmer saman við gögnin sem þú færð. Skoðaðu bílasögu, þjónustugögn og upplýsingar um þekkta galla.
- Ástand. Leitaðu að ryði, ójöfnum í lakki, slitnum dekkjum og viðvörunarljósum. Prófaðu ljós, miðstöð og þann búnað sem skiptir þig máli.
- Reynsluakstur. Hlustaðu eftir óvenjulegum hljóðum og fylgstu með hemlun, stýri og skiptingu. Fyrir rafbíl skaltu einnig spyrja um ástand rafhlöðu.
- Fyrir greiðslu. Staðfestu hver má selja bílinn, kannaðu hvort hvíli veð á honum og skráðu samkomulag um greiðslu, afhendingu og eigendaskipti.