Polestar 2 LRDM Performance
Það er með gífurlegum trega og mikilli eftirsjá að ég set þennan æðislega gullmola bíl núna á sölu.
Þetta er Brimborgar bifreið í ábyrgð.
Bílnum hefur verið mjög vel viðhaldið og er hann m.a. nýkominn úr þjónustuskoðun hjá Brimborg.
Bifreiðin fékk 5 ára keramic húðun frá Íslandsvörn þegar hún var glæný og hefur húðuninni verið viðhaldið árlega síðan.
Aukalega er búið að setja í bílinn innfelda myndavél að framan og aðra að aftan sem tekur upp akstur og umhverfi í kyrrstöðu og á ferð.
Bíllinn er eins og nýr að innan þar sem hann hefur ávallt verið notaður með áklæðum á sætum og sérstökum mottum sem verja gólfefni. Ásamt hlíf á stýri og armpúða. Og glærum hlífum yfir flesta snertifleti eins og t.d. stýristökkum og skjám.
Bíllinn er nýskráður þann 24.10.2022 og er 2023 módelið.
Keyrður 61.000 km
Stillanleg fjöðrun og allt annað sem kemur með Performance pakkanum.
Stýrikerfi í nýjustu útgáfu.
Fjórhjóladrifinn og 476 hestöfl.
Þetta er geggjaður bíll sem er æðislegur jafnt í vetrarfærðinni og á sumrin.
Kemur á nýlegum heilsársdekkjum.
Kemur einnig bæði með DC og AC hleðslusnúrum.