Bílar

Citroen Cx 2400 GTi

Upplýsingar

  • 1979
    Nýskráning
  • Beinskipting
  • Bensín
    Eldsneyti
  • 158.000 km
    Akstur
  • Rauður
    Litur

Eiginleikar

Lýsing frá seljanda

2400 cc GTi. 5 gíra beinskiptur. Vökvafjöðrun, 4 hæðarstillingar og bíllinn heldur sömu hæð í stilltri stöðu þrátt fyrir hleðslu. Leðursæti, hurðaspjöld farin að þreytast og orðin sprungin sem er/var viðbúið í Citroen þessa tíma. Breskur bifvélavirki lífgaði hann við eftir áratuga geymslu inni í Portúgal og Sviss. Ekki sprautaður nema kannski ein hurð en annars ágætur heildarsýn á bílnum og hurðin sker sig ekki mikið úr. Álfelgur orginal. Nýr bensíntankur, vatnskassi og pústkerfi. Eyðslan er eðlileg eða um 7,5 til 10 lítrar. Stærsta vélin er túrbó sem er næst fyrir ofan þessa. Citroen framleiddi á þessum tíma ekki kraftmeiri vélar en þessi er einstaklega torkgóð. Ekur á 70 km og upp úr á 5 gírnum og á 3 gír innanbæjar á 30 yfir hraðahindranir (í ökustillingu hæðar) og þá ertu tryggur um að allt fari vel og þú finnir lítið fyrir hraðhindruninni. Eins og sjá má er nánast hvergi rið að finna, aðeins yfirborðsrið í framstykki framhurðar. Sólskyggni er yfir afturhliðarrúðum í afturhurðum en ekki er rafmagn í afturhliðarrúðum. Afturrúðan er ekki með rúðuþurrku heldur er hún bogin inn svo lítið eða ekkert vatn situr á henni við akstur (sjálfhreinsandi). Gardína er fyrir aftan aftursætið vegna hugsanlegrar sólar í hnakkann. Stýrið, bremsurnar og fjöðrunin eru allt á sama vökvakerfinu svo t.d. eru bremsur með betri bremsum en í dag en ekki með ABS, það kom seinna. Sambyggt útvarp með kassettutæki er í bílnum. Dekkjastærð er 185 R 14". Ég er að selja vegna þess að annar bíll er á leiðinni sem er 51 ári eldri Citroen. Það vantar pláss fyrir hann. Ég vil fá tilboð ef þau eru raunhæf, ekkert bull takk! Viðmiðunarverð er: 4.700.000 kr. Þetta eintak er verðugt eintak tækniforystu Citroen þessa tíma fyrir 47 árum. Sími: 849-1195 Friðrik.

Bílasaga
Nýtt

Upplýsingar um feril ökutækis
Eigendasaga
Sjá hversu margir hafa átt ökutækið
Kílómetraferill
Þróun kílómetrastöðu samkvæmt skoðunum
Skoðunarsaga
Niðurstöður úr skoðunum og athugasemdir
Skráningarsaga
Saga skráninga og breytinga á ökutækinu
Notkunarsaga
Upplýsingar um fyrri notkun ökutækis
Tæknilegar upplýsingar
Helstu tæknilegar upplýsingar um bílinn
Fridrik Kjartansson
825 Stokkseyri
FK
Spurningar?
Veldu spurningu og sendu strax

Mælt með

Auto.is - auto@auto.is - Öruggur vefur fyrir kaup og sölu á bílum á Íslandi
© 2026 auto.is - kt: 560223-1880