
Til sölu 2003 Ford Mustang GT Centennial.
Bíllinn er ekinn 91.176 mílur en rúmlega 60.000 mílur á vél.
Hann er ekki gallalaus. Lakk mætti vera betra, bjölluhús/kúplingshús er beyglað og o2 skynjari í pústi farinn.
Bíllinn er gangfær og keyrir en ég mæli ekki með að keyra hann langar leiðir fyrr en að búið er að skipta um kúplingshúsið.
Búið að fjarlægja Air condition, en það fylgir með bílnum.
Hann er með 4.10 gíra í drifi.
Það var skipt um allar gúmmíþéttingar að aftan, nýjar hjólalegur að aftan, ný pakkdós í drifi, nýjar kúplingar í drifi og hann hefur verið keyrður mjög lítið síðan þá.
Það er í honum SCT X4 tölva.
Hef ekki bílskúr fyrir hann lengur og hann selst eins og hann er, vona að hann komist einhverstaðar inn fyrir veturinn.
Fullt af varahlutum og aukahlutum fylgja. Td. Mjög lítið notuð háspennukefli, innréttingar hlutir sem hægt er að skipta um, flækjur, x-pipe, stærra plenum, spíssar, ónotaður startari, 2 ónotuð dekk ennþá í plasti ofl ofl.
Ásett verð 1.9 mill. Bíllinn er staðsettur á Bíldudal og er númerslaus.
Á fullt of hlutum sem að geta selst líka með. Td. 2 blokkir, önnur úr áli og hin úr stáli og sett af heddum. Gæti þurft að hóna blokkir og þrýstiprófa hedd. Tímakeðjulok, fuel rails, SCT MAF.