
Til sölu er Hyundai Ioniq Electric Premium árgerð 2018, ekinn 129.000 km. Bíllinn er í toppstandi, hefur verið einstaklega vel hugsað um hann og hann er bæði nýskoðaður í bifreiðaskoðun og nýkominn úr þjónustuskoðun, þannig að hann er tilbúinn fyrir nýjan eiganda.
Bíllinn er sparneitur og nýtir rafhlöðuna einstaklega vel. Þrátt fyrir að vera með aðeins 28 kw rafhlöð, býður hann upp á drægni sem er mjög sambærileg við Nissan Leaf 38 kw. Uppgefin drægni er 220 km, en í raunverulegum akstri má reikna með rúmlega 200 km drægni við góðar aðstæður. Hann er með 137 hp mótor og skemmtilegur í akstri og hægt að velja á milli, Eco, Normal og Sport Mode.
Bíllinn er Premium-útgáfan og kemur meðal annars með:
- Leðursætum
- Topplúgu
- Premium Infinity hljóðkerfi
- Hiti í aftursætum
- Active Cruise Control (eltir næsta bíl)
- Autamatic miðstöð
- Apple Car Play
- Android Auto
- GPS með íslensku korti
Bíllinn er með CCS2 hraðhleðslutengi, sem er orðið algengasti staðallinn á hraðhleðslustöðvum. Það gerir hleðslu aðgengilegri en hjá mörgum eldri rafbílum sem nota CHAdeMO-tengi, þar á meðal Nissan Leaf.
- Nýskoðaður
- Nýkominn úr þjónustuskoðun
- Mjög hagkvæmur í rekstri
- Vel með farinn og í mjög góðu ástandi