
Ssangyong Rexton fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur, 7 manna, diesel jeppi til sölu. Bíllinn er með Eco tuning frá Bílaforritun.is sem þýðir að hann er að eyða aðeins minna og er aflmeiri en aðrir bílar sömu tegundar eða rétt yfir 200 hestöfl.
Ásamt því er hann með leðuráklæði í báðum framsætum (ekki að aftan) og með dráttarbeisli með krók.
Bíllinn kemur á Wrangler, Duratrac í stærðinni 265x60x18R sem hafa einungis verið keyrð í 1 ár og einnig fylgir umgangur af nýjum nelgdum Hankook Ipike X W429A vetrardekkjum sem hafa einungis verið ekin hálfan vetur.
Virkilega sterkbyggður jeppi á góðu verði með öllu sem þarf í veturinn og í ferðalögin.