
Til sölu VW Polo, árgerð 2017, ekinn 167 þús. km.
FULLKOMINN FYRSTI BÍLL
Bíllinn er beinskiptur, bensín og hefur reynst mér vel. Góður og sparneytinn bíll sem hentar vel bæði í bænum og lengri ferðir.
Helstu upplýsingar:
* 2017
* 167.000 km
* Beinskiptur
* Bensín
* 5 dyra
* Bluetooth
* Loftkæling
* Hnappar í stýri
* ISOFIX
* Rafdrifnar rúður (að framan) og speglar
* Skoðaður til 2027
Það eru nokkrar útlitslegar skemmdir/merki á bílnum, m.a. á stuðara og hliðarpilsi, og er það allt sýnilegt á myndum. Bíllinn er því ekki nýr í útliti en virkar vel og er í daglegri notkun.