
*Nýskoðað til 2028 án athugasemda*
Erum með Dethleffs C'Go 495 FR hjólhýsi til sölu. Eingöngu 2 eigendur.
Hýsið er með hjónarúmi og stórum borðkrók sem 2-3 börn geta sofið í. Hýsið er 2020 árgerð, mjög snyrtilegt og stöðugt í drætti. Þyngdin er vel dreifð svo það er ekki að rása á veginum. Það selst skoðað.
Truma Gasmiðstöð
Gas boiler (hægt að hita vatn)
Sólarsella
USB-A tengi og venjulegar innstungur.
Sturta og klósett.
Ísskápur með frystihólfi
3 gashellur
Vaskur
Nýtt 32" snjallsjónvarp
Get mögulega látið eitthvað útilegudót fylgja með (stóla, borð og einhvern borðbúnað).
Hýsið er 721cm með beisli
Eigin þyngd er 1.206kg
Leyfð heildarþyngd er 1.360kg
Hægt er að skoða hýsið, ekkert mál að fara með sölu í gegnum bílasölu ef kaupandi vill taka lán.
Verð er 3.790.000, engin skipti :)