
Ekinn: 186.500 km (næstu olíuskipti við 189.000 km)
Mjög vel viðhaldinn bíll sem flaug í gegnum skoðun. Var fyrir norðan í 4 ár og er með minniháttar ryð. Nýleg negld vetrardekk fylgja (notuð í 2 vetra).
Vélarljós: Vélarljós hefur logað síðan 2024 vegna O2-skynjara (mynd af villukóðum fylgir, tekin júní 2026). Skynjarinn var fjarlægður þar sem ekki var hægt að útvega varahluti í pústkerfið á þeim stað, í staðinn var soðið rör í þann hluta kerfisins. Þetta veldur því að bíllinn urrar lítillega ef ekið er hart, en er annars hljóðlátur í eðlilegum akstri. Bifvélavirkjar hafa engar áhyggjur af þessu.
Fyrri viðgerðir:
- Alltaf farið tímanlega í smurþjónustu
- Fjöðrun að framan endurnýjuð, vetur 2025
- Ný handbremsa, vetur 2025
- Háspennukefli #1 skipt, 2024
- Háspennukefli #2 skipt, vor 2026
- 3 kerti endurnýjuð, 2024
- Bremsur endurnýjaðar, 2024
- Bæði framljósahulstur skipt, 2026
- Afturljósahulstur (farþegamegin) skipt