Frábær bíll sem er yndislegt að keyra.
Allt er í lagi, þarf ekkert að laga nema lakk.
Það var galli í lakki hjá Nissan 2015-2016 og ryð hefur myndast á þaki eins og á öllum Nissan Micra bílum frá þessum árum.
Keyptur af bifvélavirkja fyrir 18 mánuðum sem fór yfir allan bílinn þegar hann fékk hann.
Flaug athugasemdalaust í gegnum skoðun maí 25.
Nýsmurður, ný gæða olía, olíusía og loftsía.
Er á nýjum nagladekkjum sem eru aðeins hærri og breiðari.
Fylgja tæplega árs gömul mjög lítið notuð frábær mjúk PIRELLI sumardekk í fullkomnu standi.
Keyrður aðeins 12.000km síðan ég keypti hann 2024.
Lítur út eins og nýr að innan og ekki einn blettur í sætum!
Bluetooth útvarp þráðlaus tenging við síma.
Takkar í stýri fyrir síma og tónlist.
Geislaspilari!
AUX og USB tengi.
Öflug Loftkæling A/C!
Það er allt í lagi í þessum bíl og ekkert sem þarf að gera við hann, nema kannski bletta í lakkið á þaki.
"Gallar": Bara einn lykill með fjarstýringu að samlæsingum. Nokkrar Hagkaupsskrámur á hurðum, smábeyglur og rispur. Örlitlar rispur vinstra megin á framstuðara.
Ofboðslega gott og létt að keyra hann. Maður situr hátt í mjúkum góðum sætum. Frábært að ferðast á honum!! Maður finnur og sér að það er búið að fara vel með hann. Ég hef farið gríðarlega vel með hann og vandað keyrslu og notkun á gírum, kúplingu og bremsum.
Hann hefur fengið mikla ást þessi bíll og er eins og að keyra nýjan bíl!
Skoða skipti á dýrari/ódýrari SJÁLFSKIPTUM bíl.